Sumarfrí Zúúber

Heyrst hefur að morgunþátturinn Zúúber sé að hætta í júlí.
Svo er ekki rétt,
í júlí ætlum við að hlaða rafhlöðurnar í sumarfríi okkar og koma fersk aftur 1. ágúst

Við komum til með að vakna með ykkur áfram alla virka morgna í vetur klukkan 7.
Bestu kveðjur Svali Gassi og Sigga

Efni þáttarins getið þið nálgast á vefslóðinni www.fm957.is


Frá hlustanda Zúúber.

Ég þjáist sko af þessu !
 
Mér fannst alveg ótrúlegt að lesa svona nákvæma lýsingu á degi í lífi mínu en var samt alveg ótrúlega ánægð með að fleiri þjást af þessu sama. ...... Ég sendi ykkur þetta og bið ykkur að hafa það í huga þegar þið undrið ykkur á því hvað ég hef sjaldan samband - ég er full af vilja en það verður því miður minna úr verki !
Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.
 
Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp :
Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.
 
Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.  Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.
Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu.
 
Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar við.
Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur".

Konur og brjóstagjöf

Hvernig er það með frændfólk og ömmur.
Nú eigum við hjónin von á okkar 3 barni þannig að ég hef smá reynslu af þessum barneignum.
Hvaða maður sem hefur staðið í þessum sporum hefur ekki tekið eftir þessari spurningu sem brennur  á vörum flestra skyldmenna eftir fæðingu 
( ERTU EKKI DUGLEGUR AÐ VAKNA MEÐ HENNI  Á NÓTTINNI ÞEGAR HÚN ER AÐ GEFA )

Ég spyr!
hvers vegna eigum við karlmenn að vakna á nóttinni þegar þær eru að gefa ungabarninu að drekka.

Eigum við kannski að leggjast á hitt brjóstið.

Kv. Gassi


Pabbi hvernig kemst barnið inní mömmu?

Jú sonur sæll, sko jú sjáðu til....

Hvað segir maður þegar 5 ára strákur spyr pabba sinn að því hvernig barnið í maga mömmu komst þangað inn. Það var þannig að sonur minn kom með þá spurningu í gær.  Ég var nú ekki lengi að útskýra fyrir syni mínum hvernig barnið sem liggur nú flatmaga í kviði mömmu, hefði komist þangað inn.
Svona sagði ég honum hvernig þetta gerðist.

1. þegar mömmur eru ungar safna þær miklum fjölda af Barbie dúkkum sem þær stjana við og klæða upp.
2. Þegar þær komast á ákveðinn aldur safna þær öllum dúkkum saman í kassa sem síðar fer svo til geymslu, eða þangað til þær vilja ala barn.
3. Þegar að stóru stundinni kemur fer mamma í geymsluna og nær í þennan kassa sem hún hafði fyrir mörgum árum áður pakkað dúkkunum í.
4.Ég og mamma þín setjumst svo niður og skoðum dúkkurnar saman og ákveðum hver þeirra verður fyrir valinu sem bróðir eða systir þín.
5. Að því loknu förum við svo saman til læknis sem kemur dúkkunni fyrir í maga mömmu, og dúkkan vex og dafnar inní kvið mömmu þinnar. Já sonur sæll svona verða börnin til.

....En pabbi, hvernig kemst dúkkan út????????

10 mín, seinna kom ég að syni mínum bragða á bardakalli sem hann á í herbergi sýnu,
Svarið sem ég fékk!  ÉG ER AÐ BÚA TIL BARDAGABARN PABBI


Komið þið sæl og blessuð

Jæja þá höfum við í morgunþættinum Zúúber ákveðið að nú skuli bloggað.
Við komum til með að setja hér inn hugrenningar okkar og ýmislegt úr þættinum okkar

Kveðja úr sólinni Zúúbber


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband