Boðorðin 10

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.

2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.

4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.

6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.

8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.

9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.

Um hvað ætli 10 boðorðið hafi fjallað??  Hugmyndir??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Ágústsdóttir

10. Hlauptu öskrandi út og láttu aldrei sjá þig aftur.

Margrét Ágústsdóttir, 29.6.2007 kl. 13:48

2 identicon

þetta er nú meiri vitleysan þessi listi ég er alveg viss um að það hafi kall skrifað þennan lista eða kannski var það bara Gassi ??????

Írena (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 16:32

3 Smámynd: Hermann Valdi Valbjörnsson

Flottur listi.

10.  Reyndu að virða allar þær bónir sem eiginmaðurinn kann að koma með varðandi kynlíf, hann þarf útrás fyrir hugmyndaflugið af og til.

Hermann Valdi Valbjörnsson, 1.7.2007 kl. 23:21

4 Smámynd: Edda Björk Ármannsdóttir

Bíddu við..... Sammála síðasta ræðumanni - NOT

Þarf maður sem sagt ekkert að sinna honum í bólinu?

Hmmm. Nei höfum síðasta boðorðið um það.

10. Láttu hann alltað koma fyrst. Mundu að karlar hafa þarfir, ekki konur. 

Edda Björk Ármannsdóttir, 8.7.2007 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband